mánudagur, 3. nóvember 2014

fimmtudagur, 24. júlí 2014

SNILLD DAGSINS

CAPRI-SUN !!!!!!!

WHO'S - DJ YAMAHO

DJ Yamaho aka Natalie er einn af aðal stuðpinnum Reykjavíkur. 
Ekki bara er hún magnaður DJ,viðskiptafræðinemi með frábæra söngrödd og geðveikt hár en núna er hún líka komin með sinn eigin útvarpsþátt á FM Xtra! 
Við fengum að taka Natalie í smá pop quiz og fræðast smá um hana.
















Hvað er uppáhalds staðurinn þinn? Reykjavík

Hvaða lag minnir þig á æskuna þína? Steamy Windows með Tinu Turner

Hvaða 3 orð lýsa Reykjavík? Stans - Laust - Stuð

Hvar og hvenær ertu mest glöð? Þegar ég er hlæjandi með vinum mínum

Hvað er skemmtilegasta ferðalag sem þú hefur farið í? Öll svo skemmtileg get ekki valið

Áttu einhverja falda hæfileika? Er með mastersgráðu í að poppa popp

Hvaða lag finnst þér lýsa þér? Songbird með Kenny G

Besti þynnkumaturinn? Eitthvað með majónesi og svo aðeins meira majónes!

Uppáhalds DJ? Dj Máni Ragnar

E.T eða Goonies? E.T
Kúreki eða Indjáni? Indjáni

Nike eða Adidas? Nike

Galla eða leðurjakki? Leðurjakki




JEFF KOONS

Jeff Koons er Bandarískur listamaður þekktur aðallega fyrir eftirhermu skúlptur sinn af venjulegum hlutum eins og chromeuð blöðrudýr eða ristastórum blómahund. Svo gerði hann líka heimsfrægu gullstyttuna af Michael Jackson og apanum hans Bubble.
Koons setti heimsmet í að selja dýrasta listaverk eftir lifandi listamann en hann seldi appelsínugulan blöðruhund á 58,4 milljónir dollara (um 6.752.208.000 kr!!!) I know right fkn klikkað!! Búið er að setja upp verk Koons allstaðar í heiminum meðal annars í Bilbao á Spáni og New York. 
Koons hefur tekið fram að það er engin falin merking á bakvið list sína og að það sem þú sérð er bara það sem þú sérð. Basic. 















miðvikudagur, 23. júlí 2014

SNILLD DAGSINS


Snilld dagsins er video eftir Kogonda sem með videoinu sýnir á fallegan hátt hvernig í myndunum hans Wes Anderson flest skotin eru "centerd" með því að láta hvíta línu í miðju falla í miðju rammans.

WHO'S REBEKKA SIF

Hver er Rebekka? 21 árs söngkona og lagasmiður. Vil alltaf hafa alltof mikið að gera, er í söng í FÍH, bókmenntafræði í HÍ og að kenna söng í Sönglist, ásamt því að spila á tónleikum, allskonar tækifærum, vakta togara og stunda fullorðinsfimleika! 




Hvað hefur þú verið að bralla hjá skapandi sumarstörfum og listatengt? Ég þurfti að fara í hálskirtlatöku í byrjun sumars og misst því úr alveg heilar tvær vikur af starfinu. En þrátt fyrir það náði ég mér á mettíma og fór á alla leikskóla Garðabæjar með söngstund og tónlistarfræðslu, elliheimilin líka og eyddi svo mestmegnis af júlí mánuði í að semja og taka upp frumsamin lög. Það er hægt að kynnast mér betur við það að hlusta á þau, “Our Love Turns to Leave” og “I Told You”. Þessi lög eru andstæður, sorg/hamingja, uppgjöf/von. Ég hef alltaf notað tónlist, ljóð og smásögur til að fá útrás á allt það góða og vonda í lífinu, alveg frá því ég var í leikskóla. Það sem gleður mig mest er að gleðja aðra, fá börnin á öllum leikskólunum til að brosa, fá eldra fólkið til að syngja með gömlu lögunum, upplifa æskuna aftur, og vonandi að leyfa fólki að tengja við lögin mín og hjálpa þeim í gegnum daginn. Líkt og mín uppáhalds tónlist hefur gert fyrir mig. Áttu þér uppáhalds... ...lag - House of the Rising Sun - ég skemmti mér stórkostlega við að öskra úr með lungun við að syngja þetta lag. ...mynd - Sweeney Todd - sú fyrsta sem mér datt í hug, kann hana utanaf (syng hana utanaf). ...mat - Grjónagrauturinn hennar mömmu ...listamann - Svanhildur Halla ...söngvara - Haley Reinhart ...disk - Neon Bible - Arcade Fire ...síðu - Einu síðurnar sem ég skoða er Facebook og Gmail, það kemur allt í News feedið manns þessa dagana. ...stað - Hraunið í Hafnarfirði ...drykk - Red Bull

Hvar er hægt að fylgjast með þér?
www.facebook.com/rebekkasif13





þriðjudagur, 22. júlí 2014

SNILLD DAGSINS

ÝR JÓHANNSDÓTTIR er snillingur dagsins. Hún er ung­ur hönnuður í skap­andi sum­ar­starfi hjá Kópa­vogs­bæ en þar hann­ar hún og prjón­ar flík­ur und­ir nafn­inu Ýrúrarí.
Endileg tjékkið inná www.yrurari.com